
Í síðasta pósti fórum við í gegnum Seiri — að flokka. Nú er komið að Seiton — að setja allt á sinn stað.
Þegar búið er að losa sig við það sem þarf ekki að vera til, þá er spurningin: hvar á allt það sem er eftir að vera staðsett?
Reglan er einföld: Allt á sér sinn stað. Alltaf.
En hvar nákvæmlega?
Þrjár þumalputtareglur:
— Það sem þú notar oftast á að vera næst þér — innan handar
— Það sem margir nota þarf að vera miðsvæðis — aðgengilegt öllum
— Það sem þú notar sjaldan má vera lengra frá — eins og í fataskápnum þínum: skíðadótið er ekki þar sem sokkarnir eru
Þetta þýðir líka að:
— Allir vita hvar hluturinn á að vera — ekki bara sá sem lagði hann niður síðast
— Þú sérð strax ef eitthvað vantar eða er á röngum stað
Gott dæmi er subway en allt sem starfsmenn þurfa til þess að búa til bát er fyrir framan þá, þegar það þarf að fylla á þá er búið að skera það og það er geymt aðeins lengra frá. Þetta tryggir að starfsmenn eru ekki að leita af tólum, tækjum eða hráefni.
En þetta á ekki bara við fyrirtæki.
Ef þú ert að pakka fyrir útileigu: gefðu hverjum hlut sinn stað í töskunni. Tjaldið alltaf fremst. Eldhúsáhöldin alltaf í sama poka. Þannig sérðu strax hvað vantar — heima, áður en þú ferð — en ekki þegar þú ert kominn á tjaldsvæðið.
Leave a comment