Þriðja skrefið í 5S — hreinsa

Við höfum flokkað. Við höfum raðað. Nú kemur Seiso — að hreinsa.

En Seiso snýst ekki bara um að fara yfir svæðið með moppu. Þetta snýst um að skilja hvað hreint þýðir — og tryggja að það viðhaldist.

Af hverju skiptir þetta máli?

Vegna þess að óhreinn vinnustaður felur vandamál. Olíublettir á gólfi geta bent til leka í tæki. Ryk á vélinni getur merkt að eitthvað sé að. Þegar vinnusvæðið er hreint sérðu frávik strax — áður en þau verða kostnaðarsöm.

Hvernig ég geri þetta í verki.

Þegar ég vinn að 5S verkefni skipti ég svæðinu upp í hluta og ég úthlutum hverjum starfsmanni sínu svæði til að þrífa. Þetta skapar eignartilfinningu — “þetta er mitt svæði og ég beri ábyrgð á því.”

Þrennt sem er gott að hafa í huga

– Öll hreinsiefni og verkfæri þurfa að vera aðgengileg — ef starfsmaðurinn þarf að leita að moppu eða hreinsiefnum er líklegt að þetta misheppnist

– Ég mæli með að taka myndir eftir að búið er að hreinsa – því það sem er hreint fyrir einum er kannski ekki fyrir öðrum. Mynd tekur allan vafa af.

– Þegar verið er að halda dag til að hreinsa þá þarf að tryggja að starfsmenn hafi tíma til þess að taka þátt í viðburðinum.

Dæmi: Gistiheimili.

Á gistiheimili er hreinlæti ekki bara fagmennska — það er varan. Ef herbergjaþjónn fær úthlutað ákveðnum herbergjum og veit nákvæmlega hvað “hreint” þýðir á mynd, þá eru minni líkur á misræmi milli starfsmanna. Gesturinn fær sömu upplifun óháð því hverjir eru í vaktinni.

En þetta á ekki bara við fyrirtæki.

Áður en þú skilar útileigubúnaðinum — þrífðu hann. Tjaldið, svefnpokann, diskana. Það er Seiso. Og næst þegar þú tekur það fram veistu strax í hvaða ástandi það er — og þarft ekki að uppgötva að það sé skemmd í tjaldinu þegar þú ert að setja það upp í rigningu nokkrum vikum síðar.


Comments

Leave a comment