Námskeið

Kennsla og Ráðgjöf í stjórnun, stöðugum umbótum (e. lean) og verkefnastjórnun

Hagnýt námskeið sem byggja á reynslu úr raunverulegum umbótaverkefnum — hjá fyrirtækjum, stofnunum og í kennslu.

Námskeið í boði

🔄

Lean for Beginners

Lean fyrir byrjendur

Þetta námskeið er hægt að sérsníða að óskum viðskiptavinarins. Hægt er að hafa byrjendanámskeið fyrir stjórnendur, starfsmenn í framleiðslu eða í skrifstofuumhverfi. Farið er hratt yfir hvað lean snýst um og helstu tól sem hægt er að nota. Hægt er að hafa þetta námskeið frá 90 mín – 3,5 klst, eftir því hvernig hentar.

⌛ 90 mín – 3,5 klst  ·  Sérsniðið að þörfum hópsins

📄

A3 Problem Solving & Project Management

A3 notkun við verkefnastýringu og vandamálarannsóknir

A3 eða þristur er eitt af verkfærum Lean en A3 vísar í stærð blaðsins sem notað er til að setja upp verkefnið / vandamálið hverju sinni. Í stuttu máli má segja að A3 sé notað til þess að leysa vandamál, stýra verkefnum eða þegar unnið er í stefnumótun. Á námskeiðinu verður m.a. farið yfir mismunandi form af A3, hvernig á að setja upp A3, farið í vandamálagreiningu og svo verður tekinn einn raunverulegur þristur.

⌛ 3 klst  · Vinsamlegast hafið samband til þess að fá verðtilboð

👁

Visual Management

Sjónræn stjórnun — töflur og 5S

Hvernig er hægt að gera stöðu, frestir og vandamál sýnileg á myndrænan hátt? Innleiðing á töflum, merkingum og mælikvörðum á vinnustað. Farið er yfir 5S aðferðina sem er grundvöllur sjónrænnar stjórnunar og hvernig hún er notuð til að halda utan um og skipuleggja vinnuumhverfið.

⌛ Sérsniðið að þörfum hópsins Vinsamlegast hafið samband til þess að fá verðtilboð

Kaizen Events

Umbótavinnustofur — Kaizen

Eitt af því sem einkennir menningu fyrirtækja sem hafa náð góðum tökum á Lean eru svo kölluð Kaizen eða umbótavinnustofur — en Kaizen er japanskt hugtak og þýðir einfaldlega stöðugar umbætur. Eitt mikilvægasta skrefið í innleiðingu Lean er að þjálfa umbótasérfræðinga innan fyrirtækisins í að leiða Kaizen verkefni á faglegan og markvissan hátt. Á námskeiðinu er farið yfir hvernig á að leiða stór og smá Kaizen verkefni, hvað þarf að gera, hvað þarf að undirbúa og hvernig er eftirfylgni háttað.

⌛ 3,5 klst  ·  Vinsamlegast hafið samband til þess að fá verðtilboð

🗺

Process Analysis

Ferlagreining

Ferlagreining er grundvöllur allra umbótaverkefna. Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig á að greina ferla með Value Stream Mapping (VSM) og öðrum verkfærum. Þátttakendur læra að kortleggja núverandi stöðu, finna galla og sóun í ferlum og teikna upp framtíðarástand sem myndar grunninn að umbótaáætlun.

⌛ Sérsniðið að þörfum hópsins, Vinsamlegast hafið samband til þess að fá verðtilboð

🌟

The Effective Leader

Skilvirki leiðtoginn

Hvernig beitir leiðtoginn lean-hugsunarfræðinni til að skapa virðisaukningu og styrkja starfshópinn? Hagnýt forysta sem skilar árangri í raunverulegum umbótum. Farið er yfir hvernig leiðtogar geta notað lean-verkfæri til að leiða breytingar, hvetja til umbóta og skapa menningu þar sem stöðugar umbætur eru hluti af daglegum rekstri.

⌛ Sérsniðið að þörfum hópsins, Vinsamlegast hafið samband til þess að fá verðtilboð

🏆

Lean Academy — Bronze Level

Lean skólinn

Í þessu námi þá er hist í 10–13 skipti í 60–90 mínúur í senn. Hópurinn getur verið frá 10–15 manns. Annað hvert skipti er farið yfir ákveðið viðfangsefni og síðan er lesin bók og farið yfir hana líka. Hægt er til dæmis að lesa bækurnar „factory of one“ eða „Andy and me“.

Dæmi um skipulag námskeiðs:

  1. Saga Lean, VA + NVA, Muda, Muri, Mura
  2. 5s og Toast kaizen
  3. Andy and me, kaflar 1–4
  4. Sjónræn stjórnun – töflur, KPI’s, vandamálarannsóknir
  5. Andy and me, kaflar 5–12
  6. Kaizen
  7. Andy and me, kaflar 13–16
  8. A3 hugsun
  9. Andy and me, kaflar 17–19
  10. Stöðluð vinna og Lean office
  11. Andy and me, kaflar 20–26
  12. Heimsókn í lean fyrirtæki
  13. Örstutt Lean Bronz próf og vottorð

⌛ 10–13 skipti à 60–90 mín  ·  Hópur: 10–15 manns

Einungis í boði fyrir fyrirtæki — Vinsamlegast hafið samband til þess að fá verðtilboð

Time Management

Tímastjórnun

Hvernig nýtir þú tímann þinn sem best? Á þessu námskeiði er farið yfir hagnýtar aðferðir við tímastjórnun sem byggja á lean-hugsunarfræðinni. Þátttakendur læra að þekkja og eyða tímavargri, forgangsraða verkefnum og skapa skipulag sem gerir þeim kleift að vinna skilvirkara — hvort sem er á skrifstofunni eða á vettvangi.

⌛ Sérsniðið að þörfum hópsins, Vinsamlegast hafið samband til þess að fá verðtilboð

🤖

Using AI for Efficiency

Að nota AI fyrir skilvirkni

Gervigreind er að breyta því hvernig við vinnum — en hvernig notum við hana á markvissan hátt? Á þessu námskeiði er farið yfir hagnýtar leiðir til að nýta AI-verkfæri í daglegu starfi til að auka skilvirkni, draga úr sóun og gera betri ákvarðanir hraðar. Námskeiðið sameinar lean-hugsunarfræði og nýjustu AI-tækni á aðgengilegan og hagnýtan hátt.

⌛ Sérsniðið að þörfum hópsins, Vinsamlegast hafið samband til þess að fá verðtilboð

Áhugi á þjálfun?

Námskeið eru sniðin að þörfum hvers hóps — allt frá einstaklingum til stórra fyrirtækja. Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar.

Þetta segja þátttakendur

„Viktoría sameinar fræðilegan bakgrunn og hagnýta reynslu á framúrskarandi hátt. Námskeið hennar er besta þjálfunin sem við höfum fengið á liðnum árum.”

Framkvæmdastjóri, íslenskt framleiðslufyrirtæki

„Ég lærði meira á tveggja daga Kaizen-vinnustofu hjá Viktoríu en á mánuðum af sjálfsnámi. Mjög mælt með.”

Verkefnastjóri, opinber stofnun

Á döfinni:

Ferla og Gæðastjórnun í opna háskólanum haust 2026

PDM námið í opna háskólanum 2026