
Á stórmótum í knattspyrnu sjáum við iðulega sömu fréttirnar eftir leiki Japans: Á meðan aðrir stuðningsmenn fagna eða syrgja, taka japönsku stuðningsmennirnir upp bláa ruslapoka og þrífa eftir sig í stúkunni. Mót eftir mót. Leikur eftir leik — jafnvel eftir tap. Og það eru ekki aðeins stuðningsmennirnir: Japanska liðið þrífur einnig búningsklefann eftir hvert mót og skilur eftir þakkarbréf á tungumáli landsins sem þeir eru. Þetta er ekki sýndarmennska — þetta er djúpstæður hluti af menningu þeirra.
Í stjórnun þá þekkjum við þetta sem 5S kerfið sem búið var til í Toyota, Japan.
Seiri — Flokka
Seiton — Raða
Seiso — Hreinsa
Seiketsu — Staðla
Shitsuke — Viðhalda
Starfsstöðvar fara í gegnum þessi skref til þess að lágmarka sóun fyrir starsfmenn sína.
Í Japan er annað hugtak “Atarimae no koto” — “að gera hluti sem þykja sjálfsagðir”. Að skilja við umhverfi sitt í betra ástandi en maður kom að því er ekki skylda; það er virðing.
Á heimsmeistaramótinu í fótbolta höfum við líka séð skoska stuðningsmenn — hinn litríka „Tartan Army” — þramma um götur bandarískra borga, spilandi á sekkjapípur og haft gleðina í hávegum. En það sem vakti mesta athygli var umgengnin: Þeir tóku til eftir sig á almannafæri og fengu mikið hrós fyrir.
Þegar fólk sér aðra sýna þessa virðingu gerist eitthvað dásamlegt: Aðrir fylgja á eftir — ómeðvitað. Gott fordæmi smitar.
Gullna reglan: Það sem þú gengur fram hjá, samþykkir þú
Vinnustaðurinn okkar er okkar „stúka”. Ruslið þar þarf ekki að vera áþreifanlegt rusl — það getur líka verið ófrágengin verkefni eða óskýr ferli.
Ef þú gengur fram hjá rusli eða slæmri hegðun án þess að bregðast við, ertu í raun að segja: „Þetta er allt í lagi. Þetta er okkar menning”
Leiðtogar sem vilja skapa skilvirka og góða vinnustaði mega aldrei horfa undan. Með því að taka til í ferlunum okkar, sýna umhyggju fyrir smáatriðunum og bregðast við því sem betur má fara, setjum við hærri staðal — fyrir okkur sjálf og fyrir alla aðra. #skilvirkileiðtoginn#HM#Japan#Lean#5s



Leave a comment