
🇬🇧 In English: Strategy workshops are only as good as the connection they create between vision and daily work. In this post, I walk through how I facilitated a Hoshin Kanri (X-matrix) session with my own team — a powerful method for aligning long-term breakthrough objectives with the concrete improvement projects that make them real. The key insight: everyone leaves knowing exactly how their work connects to the bigger picture.
🇮🇸 Íslensk samantekt: Hoshin Kanri er öflugt tæki til stefnumótunar sem tengir langtímamarkmið við daglegt starf hvers og eins í teyminu. Í þessari grein fer ég yfir hvernig við nýttum okkur X-matrix til að tryggja að öll umbótaverkefni okkar tengdust stærri markmiðum. Lykilatriðið: allir fóru úr fundinum vitandi nákvæmlega hvernig starf þeirra tengist heildarmyndinni.
Hoisin Kanri
Ég var nýverið í stefnumótun með teyminu mínu og ákvað að nýta mér hugmyndafræðina í Hoisin Kanri og X-matrix. Í mjög stuttu máli er þetta að finna út hvað er mikilvægt og tengja alla hluti saman — ásamt því að fá starfsmenn í lið með sér.
Ég ákvað að stýra vinnustofunni sjálf fyrir teymið mitt og fór í gegnum eftirfarandi skref:
- Kynnti stefnu fyrirtækisins
- Teymi ræddi saman um hvaða 3-5 “breakthrough objectives” við vildum hafa fyrir næstu 3-5 ár — þetta þurfa að vera stór, þverfagleg markmið
- Næst tókum við umræður um hvaða markmið ætlum við að setja okkur fyrir næstu 12-18 mánuði. Hámark 5-7!
- Við spurðum okkur hvernig tengist þetta styttra markmið okkar lengra markmiði
- Næst fórum við yfir hvaða umbótaverkefni ætlum við að vinna að. Hámark 5-7!
- Aftur fórum við yfir tengingar — hvernig tengjast þessi verkefni styttri tíma markmiðum
- Síðan ákváðum við hvaða mælikvarða við ætlum að nota
- Tengjum mælikvarðana við 12-18 mánaða verkefnin
- Síðan settum við eigendur á umbótaverkefnin og notfærðum okkur RACI model
Allir voru sammála um að þetta var frábær leið til að taka stefnuna lengra!

Leave a comment