Hvernig lærir fólk 5S á skemmtilegan hátt?

Það er hægt að útskýra 5S með glærum. En þegar fólk upplifir það með því að gera þá opnast augun!

Þegar ég kenni þá nota ég iðulega leiki meðfram kynningum til þess að tryggja að allir séu virkir í kennslun og læri með því að gera. 

Hér eru leikir og æfingar sem að hægt er að nota í þjálfun

Allt í drasli

Setjið upp vinnusvæði sem er vísvitandi í ólagi. Biðjið starfsmann að finna fimm tilgreind verkfæri eða hluti — og takið tímann. Skipulagið svæðið síðan saman. Takið aftur tímann. Flestir eru sammála að það er mun betra að finna hluti sem eru í röð og reglu.  

Ljósmyndaveiðin

Skipta starfsmönnum í hópa. Hópurinn með bestu “áður” myndir af óskipulögðum svæðum vinnur — og svo verða þeir sem fundu vandann ábyrgir fyrir að laga hann. Þetta skapar eignartilfinningu án þess að yfirmaðurinn þurfi að benda á neitt.

5S keppnin

Skipta vinnustaðnum í svæði og gefa hópum ákveðinn tíma til að 5S-a sitt svæði. Dómnefnd — með úttektarlista — gefur einkunn. Hópurinn með hæstu einkunn fær viðurkenningu – ég hef verið með bikar sem hefur verið fylltur af sælgæti. Þetta virkar sérstaklega vel þegar starfsmenn eru mjög kappsamir. 

30 sekúndna reglan

Biðjið starfsmenn að finna eitthvað ákveðið á vinnusvæðinu sínu — og takið tímann. Ef það tekur meira en 30 sekúndur er eitthvað að. Einfalt, fljótlegt og sýnir vandann.

“Hvað er þetta?” leikurinn

Takið hluti sem enginn þekkir lengur — gömul tæki, ómerkt ílát, hlutir sem hafa verið á sama stað í ár — og leggið þá á borð. Starfsmenn þurfa að ákveða: nauðsynlegt, rauður miði eða ruslatunna. Oft kemur á daginn að enginn veit hvað hluturinn er til — og allir hafa gengið framhjá honum í tvö ár. Stundum er ég líka með keppni þegar ég er að 5s-a – “hver finnur elsta hlutinn”, ég hef fundið til dæmis 20 ára úreltar bækur. Ég hvet þig líka til að kíkja í krydd hilluna heima hjá þér og skoða hvað er elsta útrunna kryddið – líka hægt að gera keppni með það!

A graphic describing the game 'Hvað er þetta?' which focuses on identifying items and determining whether they are necessary or junk. It includes instructions on gameplay, examples of categorized items, and engagement prompts for players.

LEGO æfingin

Klassísk þjálfunaræfing: tveir hópar smíða sama LEGO hlut. Annar hópurinn fær skipulagt, merkt vinnusvæði. Hinn fær allt í ólagi. Takið tímann en munurinn á tímanum og villurnar segja allt. Hentar sérstaklega vel þegar þú ert að kynna 5S fyrir yfirmönnum eða eigendum sem eru ekki sannfærð um að þetta skipti máli.

Infographic explaining a LEGO building activity with instructions and observations. It includes steps for two groups to collaboratively build the same LEGO structure, highlights tips for effective teamwork, and provides time measurements and observations on performance.

Klassíski 5s númeraleikurinn

Það eru nokkrar ítranir í þessum leik. Í fyrstu ítrun fær hópurinn mynd af tölum sem virðast vera raðað randomly á blaðið. Þau eru beðin um að krossa frá 1 og upp úr (í röð), eftir ákveðinn tíma er athugað hversu langt fólk komst – vanalega ekki mjög langt! Í næstu ítrun er búið að fækka tölunum og þá kemst hópurinn vanalega lengra. Í þriðju ítrun er búið að setja línur til þess að hjálpa fólki að sjá munstrið og í lokin er þetta í röð og þá ná allir öllum tölunum. Þessi leikur tekur smá tíma en virkar alltaf mjög vel

A visual guide illustrating the '5S number game' with four different stages, showing how to cross out numbers in a grid. Each stage includes instructions in Icelandic and graphical representations of the processes involved.

Besti lærdómurinn kemur vanalega ekki beint úr glærukynningu heldur að mínu mati umræðum og með því að “gera”.


Comments

Leave a comment