Fimmta skrefið í 5S — að viðhalda

An educational graphic about the 5S methodology in a workplace, detailing steps to maintain standards and improve efficiency. It features tables, checklists, and tips outlined in Icelandic, accompanied by images of tools and equipment in a clean industrial setting.

Við höfum flokkað, raðað, þrifið og staðlað. En hvað gerist eftir þrjár vikur þegar öllum líður vel og daglegar skyldur taka yfir?
Shitsuke — að viðhalda er skrefið sem ákveður hvort 5S verður hluti af menningu fyrirtækisins eða bara annað átaksverkefni sem þarf að gera upp á nýtt eftir ár.
Þetta skref gleymist of oft. Og þegar það gleymist enda 5S verkefni alltaf á sama stað — keyrð sem átök, aftur og aftur, án þess að nokkuð breytist til lengri tíma.
Það sem hefur virkað hjá mér!
— 5S úttektarlisti — reglubundnar úttektir sem fara yfir hvert svæði. Myndir af réttu ástandi eru hluti af listanum — þannig er ekki um mat að ræða heldur samanburð við staðalinn
— Þrifaplön og þjálfunarlisti — hver þrífur hvað, hvenær og hvernig. Starfsmaður kvitta undir eftir lok þrifa
— 5S leiðtogar — þjálfaðir starfsmenn sem geta tekið úttektir á sínum svæðum. Þetta dreifir ábyrgðinni og skapar eignar tilfinningu
En — og þetta er mikilvægt.
Úttektir mega ekki verða “löggu leikur”. Ef starfsmenn upplifa að svo sé þá deyr þetta mjög hratt. Betra að tengja úttektirnar við tillögukerfi — ef starfsmaður sér tækifæri til umbóta á svæðinu sínu, getur hann lagt fram tillögu sem er skoðuð og innleidd strax. Þetta breytir úttektinni úr eftirliti í umbótatæki.
Dæmi: Framleiðslufyrirtæki.
Þar sem margar framleiðslulínur eru í gangi á sama tíma er hægt að nota 5S úttektarlistann til að bera saman línurnar og starfstöðvar innbyrðis. Hvaða lína er alltaf með hæstu einkunn? Hvað er hún að gera öðruvísi? Þá er hægt að læra af þeim bestu innan fyrirtækisins og leyfa þeim að hjálpa öðrum deildum og vera fyrirmynd — án þess að þurfa ráðgjafa. Bestu leiðtogarnir eru þegar til í húsi.
En þetta á ekki bara við fyrirtæki.
Ef þú ert til dæmis með útileigubúnað — farðu reglulega yfir búnaðinn, til dæmis eftir hvert sumar. Farðu yfir listann, taktu myndir, merktu hvað þarf viðgerð. Þannig kemstu ekki í þá stöðu að uppgötva vandann þegar þú ætlar næst í útileigu.


Comments

Leave a comment