Lean leikur: Multitasking

Allir halda að “multitasking” sé skilvirk. En þessi leikur sýnir afhverju „multitasking“ hægir á teyminu þínu

Margir stjórnendur hrósa sér af því að vera góðir í multitasking. En sannleikurinn er sá að þegar við hoppum á milli verkefna tapast gríðarlegur tími í svokallaðan „skiptikostnað“ (context switching).

Þessi einfaldi leikur sýnir fram á muninn á lotuvinnslu (batching) og flæði (flow):

Fyrri umferð (Lotuvinna / Truflanir): Teymið á að brjóta blöð niður í ferninga, klippa þá og teikna á þá litaða punkta. Í fyrri umferðinni stýra „stjórnendur“ ferlinu og krefjast þess að unnið sé í stórum skömmtum og skipt sé reglulega á milli lita.

Seinni umferð (Stöðugt flæði): Teymið fær að skipuleggja sig sjálft þar sem einn ferningur er kláraður í einu (one-piece flow) án truflana frá stjórnendum.

Niðurstaðan: Seinni umferðin er nánast undantekningarlaust mun fljótlegri og gæðin verða betri. Þegar við neyðum starfsfólk til að skipta stöðugt um fókus, truflum við hugsunarflæðið. Rannsóknir sýna að það tekur margar mínútur að ná fyrri einbeitingu eftir eina truflun (eins og að svara tölvupósti).

Viltu skilvirkni? Búðu til umhverfi þar sem fólk getur klárað eitt verkefni í einu.

#skilvirkileiðtoginn #lean #multitasking #leanleikur


Comments

Leave a comment