Fjórða skrefið í 5S — að staðla

Nú kemur Seiketsu — að staðla. Þetta er skrefið sem tryggir að allt sem við höfum byggt upp haldist — og að allir sjái afbrigðilegt ástand eins og skot og geti brugðist við.

Þetta snýst m.a. um að nota sjónræna stjórnun og merkja hvar hlutir eiga að vera.

Merkingar — af hverju sumum finnst þetta óþægilegt!

Þegar ég kynni sjónræna stjórnun og merkingar á vinnustöðum heyri ég oft: “Þetta er of mikið… við þurfum ekki að merkja allt.” En við notum sjónræna stjórnun og merkingar í kringum okkur í okkar daglega lífi. Ljósið er rautt — þú stoppar. Brotalínan á veginum segir þér hvar þú mátt vera. Öryggisgirðingin á flugvellinum segir þér hvar þú mátt ekki ganga. Enginn kvartar yfir of mörgum merkingum í umferðinni — vegna þess að við skiljum af hverju þær eru þar og þær koma flestum heilum heim.

Sama gildir á vinnustaðnum.

Það sem staðlar gera:

— Merkingar sýna hvar hlutir eiga heima — allir skilja hvert á að skila hlutunum, ekki bara sá sem setti upp kerfið

— Litakóðar gefa merkingu — rautt þýðir vandamál, grænt þýðir eðlilegt ástand, gult þýðir varúð. Þegar fyrirtæki ákveður hvað litirnir þýða og heldur því í gegnum allt, þá þarf fólk ekki að lesa — það sér og veit

— Gólfmerkingar skilgreina flæðið — hér má ganga, hér má ekki, hér er biðsvæði, hér er hætta. Þetta er grunnur öryggismenningar

— Afbrigðilegt ástand verður sýnilegt — þegar allt er staðlað sérðu strax þegar eitthvað er ekki eins og það á að vera. Þú þarft ekki að vita hvað eðlilegt lítur út — þú sérð það – frábært dæmi um þetta er til dæmis skuggaborð.

Dæmi: McDonald’s.

Þetta er kannski best staðlaða fyrirtæki í heimi. Sömu tæki, sömu merkingar, sömu verklagsreglur — hvort sem þú ert í Svíþjóð eða Tókýó. Þeir hafa búið til kerfi þar sem nýr starfsmaður getur lært hlutverk sitt á skömmum tíma vegna þess að umhverfið kennir — ekki bara yfirmaðurinn. Gæðin eru ekki háð því hverjir eru á vaktinni.

Það er líka hægt að heimfæra þetta á heimilið.

Ef þú ert í útileigu og pakkar alltaf á sama hátt — rauður kassi er eldhúsáhöld, blár kassi er matur — þá þarftu aldrei að opna allt til að finna það sem þú ert að leita,

#skilvirkileiðtoginn #5s #Seiketso #staðla #lean


Comments

Leave a comment