Stóru málin!


Í dag var haldin hin árlega páskaeggjasmökkun hjá Bionics mfg og service. Eins og allir vita þá taka íslendingar páskaeggja átið alvarlega og var því mjög gott að fá vísindalega niðurstöðu um hvaða egg var best. Sex egg kepptu að þessu sinni, við reyndum að hafa fjölbreyttni í eggjagerð og frá hvaða framleiðanda. Eggin sex voru: Góu Hraun (hefur oft sigrað), Góu Appolo fylltur lakkrís, Sanbó lakkrís og krunch, Freyju Bombu Egg, Bónus grísar egg og Nóa saltlakkrís með karmellukrönsi. Spurt var um útlit, innihald og bragð. Við skoðuðum líka málshætti og að lokum hvernig við myndum raða í sæti.
Að þessu sinni varð Nóa saltlakkrís og karmellu sigurvegari. Bónus grísareggið var talið best fyrir yngri neytendur og þá sem kjósa magn fram yfir gæði. Í öðru sæti var Hraunið, þriðja Fylltur lakkrís frá Góu. Almennt var talið að Góu eggin væru betur fyllt en önnur. Bombu eggið var bragðgott en því miður virtust vera einhver framleiðsluvandræði hjá Freyju því allar bomburnar voru fastar í einni klessu í botninum.

Eruð þið búin að velja ykkar egg??


Comments

Leave a comment